152. löggjafarþing — 52. fundur,  15. mars 2022.

um fundarstjórn.

[14:33]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil bjóða hv. þm. Friðjón R. Friðjónsson velkominn til starfa. Það er svolítið krúttlegt að fylgjast með þessum kosningaskjálfta sem er hlaupinn í Sjálfstæðisflokkinn. Það er bara gott og blessað. Ég vil líka bjóða honum að eiga hér orðastað við okkur undir lið þar sem við getum svarað fyrir okkur og átt samskipti. Gangi honum bara vel í sínu.