151. löggjafarþing — 52. fundur,  3. feb. 2021.

stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

466. mál
[16:14]
Horfa

Flm. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður spyr: Hvaðan í veröldinni er þessi hugmynd komin? Það er rétt að hún var ekki í samráðsgáttinni. Hins vegar bárust þangað athugasemdir og við setjum auðvitað frumvörp í samráðsgátt til að fá athugasemdir. Bent var á að við hefðum ekki tekið afstöðu til þess í tillögunum að kjörinn forseti hefði meirihlutastuðning. Þá skoðaði ég sérstaklega niðurstöður rökræðukönnunarinnar, eins og ég nefndi áðan í ræðu minni, og í því samtali sem þar átti sér stað kom fram mjög vaxandi stuðningur við þessa aðferðafræði. Og hvaðan í veröldinni? Þetta er víða þekkt. Ég nefndi hér að forseti Írlands er einmitt kosinn með raðaðri kosningu. Því hefur verið haldið fram að það eigi ekki við þegar um tiltölulega valdalítinn forseta er að ræða en ég tel að þau rök eigi miklu betur við um tveggja umferða kerfið. En ég kem að þessu betur hér á eftir.