133. löggjafarþing — 53. fundur, 17. jan. 2007.
Ríkisútvarpið ohf.
56. mál
Virðulegur forseti. Já, ég held að við ættum bara að taka höndum saman um það. Ef tillagan kemur af einhverjum ástæðum ekki fram í frumvarpi frá stjórnarskrárnefndinni bætum við úr því í þingsölum, flytjum þá tillögu og sameinumst um að uppfylla þetta ákvæði stjórnarsáttmálans.