144. löggjafarþing — 53. fundur, 20. jan. 2015.
háspennulögn yfir Sprengisand.
Áður en forseti gefur hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra orðið vill forseti óska hæstv. ráðherra til hamingju með nýtt og virðingarmikið og mikilvægt starf, bjóða hæstv. ráðherra velkominn til starfa á Alþingi sem umhverfisráðherra og jafnframt þakka hæstv. ráðherra mjög gott og farsælt samstarf jafnt á vettvangi þingsins sem vettvangi þingflokksformanna.