136. löggjafarþing — 53. fundur, 11. des. 2008.
olíugjald og kílómetragjald, vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. og bifreiðagjald.
233. mál
Herra forseti. Við ræðum hér breytingu á þessum gjöldum um 12,5% í staðinn fyrir 11,5% eins og gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Ekki var fjallað sérstaklega um breytingu á styrkjum eða niðurgreiðslum til almenningssamgangna en það er þá sérmál.