149. löggjafarþing — 54. fundur, 21. jan. 2019.
vísun skýrslu Ríkisendurskoðunar til nefndar.
Forseti vill tilkynna að með bréfi, dagsettu 21. desember 2018, hefur forseti óskað eftir því, samanber 8. tölulið 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit Fiskistofu.