131. löggjafarþing — 55. fundur, 10. des. 2004.
Tekjuskattur og eignarskattur.
351. mál
[10:51]
Jóhanna Sigurðardóttir (Sf):
Virðulegi forseti. Hér er á ferðinni enn ein skerðingin á vaxtabótum. Þessi ríkisstjórn hefur verið dugleg við að skerða vaxtabæturnar frá því að hún tók við völdum. Vaxtabætur hafa verið skertar á þessu og að meðtöldu næsta ári um 900 millj. kr. Hér er harkalega ráðist að skuldugum heimilum og ég segi nei.