131. löggjafarþing — 55. fundur, 10. des. 2004.
Úrvinnslugjald.
394. mál
[17:44]
Mörður Árnason (Sf):
Forseti. Hér er verið að leggja gjald að óþörfu og að ósekju á eigendur gamalla bíla, bíla sem framleiddir eru á árabilinu 1977–1987. Við samfylkingarmenn erum ekki miklir áhugamenn um að leggja skatta á fólk sem ekki er sérlega vel stætt og efumst um að mikil efni séu í hópi eigenda bíla sem framleiddir eru frá 1977–1987 og munum því sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.