144. löggjafarþing — 55. fundur, 22. jan. 2015.
úrskurður forseta.
Þó að mönnum mislíki niðurstaða forseta Alþingis sem hann hefur stutt rökum ber hv. þingmönnum engu að síður að hlíta þingsköpum, m.a. með ræðutíma. Það átti við um hv. þm. Helga Hjörvar.