145. löggjafarþing — 55. fundur, 15. des. 2015.
orð þingmanns -- lengd þingfunda.
Meðan sú staða er uppi að ekki sér fyrir endann á þeirri umræðu sem stendur yfir um fjárlögin er forseta og forsætisnefnd gjörsamlega fyrirmunað að geta skipulagt störf þingsins, hvað þá boðið upp á einhvern fyrirsjáanleika. Sú staða sem uppi er núna er mjög óvanaleg sem hefur það í för með sér að starfsemi þingsins verður fyrir vikið mjög óvenjuleg eins og allir vita.