149. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2019.

kosning tveggja nýrra varaforseta tímabundið. --- Ef leyft verður.

[14:49]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta hefur borist einn listi sem á eru nöfnin Steinunn Þóra Árnadóttir og Haraldur Benediktsson. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég réttkjörna sem 7. varaforseta, komi ekki fram aðrar tilnefningar, Steinunni Þóru Árnadóttur og sem 8. varaforseta Harald Benediktsson til þess tímabundið að fjalla um siðareglumál sem fyrir forsætisnefnd liggur.