131. löggjafarþing — 56. fundur, 10. des. 2004.
Tekjuskattur og eignarskattur.
351. mál
[22:23]
Guðmundur Árni Stefánsson (Sf):
Herra forseti. Það er sérstök ástæða til að gera rækilega grein fyrir því að á þessum mínútum hafa stjórnarliðar fellt tillögur stjórnarandstæðinga um að lækka matvöruverð í landinu stórkostlega. Á þessum síðustu mínútum hafa stjórnarliðar fellt tillögur okkar stjórnarandstæðinga um að hækka barnabætur stórkostlega. Það mun sitja eftir í þessari atkvæðagreiðslu, herra forseti.