138. löggjafarþing — 56. fundur, 21. des. 2009.
ráðstafanir í skattamálum.
239. mál
Virðulegi forseti. Hér er verið að ráðast í nauðsynlegar hækkanir á neyslu- og þjónustugjöldum vegna hrunsins en einnig eru framlengdar heimildir til útgreiðslu á séreignarsparnaði sem hafa hjálpað mörgum á þessu ári við að takast á við erfiðleika í sínum fjármálum. Þessi ráðstöfun mun halda áfram að gera fólki kleift að nýta þetta úrræði í þeim erfiðu aðstæðum sem nú eru.