150. löggjafarþing — 56. fundur, 3. feb. 2020.
varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að 6. þm. Reykv. n., Steinunn Þóra Árnadóttir, verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Halla Gunnarsdóttir.
Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.