132. löggjafarþing — 56. fundur, 1. feb. 2006.
Sameining opinberra háskóla.
442. mál
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni fyrir fyrirspurnina og ég beini því til hæstv. menntamálaráðherra að taka þessa hluti til mjög alvarlegrar skoðunar. Átta háskólar í 300 þús. manna samfélagi — er ekki hugsanlegt að það sé hægt að spara verulegar fjárhæðir án þess að sérstaða viðkomandi skóla verði skert?