150. löggjafarþing — 57. fundur, 4. feb. 2020.
tilhögun þingfundar.
Forseti vill geta þess að stefnt er að atkvæðagreiðslum að afloknum umræðum um 2. dagskrármálið nú á eftir, eða síðar á fundinum. Þá vill forseti einnig geta þess varðandi fundahaldið í dag að gert verður hlé á þingfundi kl. 15 og eru þingmenn beðnir að ganga út á Alþingisreit þar sem tekin verður skóflustunga að nýbyggingu Alþingis.