141. löggjafarþing — 58. fundur,  20. des. 2012.

opinber stuðningur við vísindarannsóknir.

198. mál
[15:23]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir.

Með þessu frumvarpi er lagt til að Rannsókna- og Rannsóknarnámssjóður verði sameinaðir. Nafni Tækjasjóðs verði breytt í Innviðasjóð og hlutverk hans víkkað út svo hann geti styrkt aðra innviði til rannsókna. Jafnframt verði fagráði Innviðasjóðsins komið á laggirnar. Þá er lagt til að skipuð verði ein sameiginleg stjórn um bæði Rannsóknasjóð og Innviðasjóð. Að lokum er í frumvarpinu kveðið á um að Markáætlun á sviði vísinda og tækni verði veitt lagastoð og formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs verði ekki jafnframt formaður stjórnar Rannsóknasjóðs.

Í 1. gr. er lagt til að heiti Tækjasjóðs verði breytt í Innviðasjóð og verður hlutverk hans að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Hann mun veita styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum. Við meðferð frumvarpsins í nefndinni komu fram athugasemdir um smæð sjóðsins sem og mikla þörf fyrir uppbyggingu innviða. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og telur rétt að með víðtækara hlutverki sé eðlilegt að stefnt verði að því að sjóðurinn verði stærri og umsvifameiri. Nefndin bendir á að í fjárfestingaráætlun áranna 2013–2015 er gert ráð fyrir stækkun helstu opinberu samkeppnissjóðanna, þ.e. Rannsóknasjóðs, Tækniþróunarsjóðs og Markáætlunar, en Tækjasjóður er þar undanþeginn. Í norrænu og öðru evrópsku rannsóknastarfi er einnig lögð áhersla á uppbyggingu rannsóknarinnviða og framtíðarskipulag. Það er álit nefndarinnar að nauðsynlegt sé að marka stefnu um uppbyggingu og skipulag rannsóknarinnviða ásamt því að fjalla um alþjóðlegt samstarf á þessu sviði.

Þá er lagt til að starfandi verði þrír sjóðir, Rannsóknasjóður, Innviðasjóður og Markáætlun á sviði vísinda og tækni, en meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja betri samfellu á milli sjóðanna sem styrkja vísindarannsóknir. Nefndin vill í þessu sambandi árétta mikilvægi þess að úthlutanir úr vísindasjóðum séu trúverðugar og byggi á samkeppnisgrundvelli.

Í frumvarpinu er lagt til að Markáætlun á sviði vísinda og tækni verði veitt lagastoð og jafnframt að sérstakri stjórn verði falið að fara með málefni hennar. Stjórn Markáætlunar setur reglur um umsóknir, mat og málsmeðferð í samræmi við áherslur Vísinda- og tækniráðsins. Nefndin beinir því til Vísinda- og tækniráðs að hafa samkeppnissjónarmið að leiðarljósi þegar hún markar áherslur nýrrar Markáætlunar, en hún er mikilvæg leið fyrir stjórnvöld til að leggja nýjar áherslur og byggja upp árangursríkt samstarf á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. Þess vegna teljum við í nefndinni að þetta frumvarp og framgangur þess skipti miklu máli til að bæta og efla allt starf á þessu sviði, tæknisviðinu, og nýsköpun og komi til með að samræma það starf mjög verulega.

Til að árétta hið breiða hlutverk Markáætlunar leggur nefndin til þær breytingar að áætlunin muni einnig ná til nýsköpunar.

Það kemur fram í nýrri 10. gr. laganna samkvæmt frumvarpinu að niðurstöður rannsókna sem kostaðar eru með styrkjum úr sjóðum er falla undir lögin skuli birtar í opnum aðgangi og vera tiltækar nema sérstaklega sé samið um annað. Þarna er um nýmæli að ræða. Í stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir árin 2010–2012, Byggt á styrkum stoðum, er fjallað um mikilvægi þess að tryggja opinn aðgang að niðurstöðum rannsókna sem eru styrktar af opinberu fjármagni. Opinn aðgangur að vísindagreinum felur í sér að birtar greinar séu aðgengilegar á rafrænu formi án endurgjalds fyrir notendur og það stuðlar að skilvirkari miðlun rannsóknaniðurstaðna og þar með nýtingu þeirra og möguleikum á aukinni verðmætasköpun. Við bendum á að á fundi Vísinda- og tækniráðs 25. júní 2010 samþykkti Vísinda- og tækniráð að undirrita Berlínaryfirlýsinguna um opinn aðgang en um er að ræða alþjóðlegan sáttmála um opinn aðgang sem hefur það að markmiði að stuðla að eflingu vísinda og nýsköpunar í samfélaginu. Hinn 12. september sl. undirritaði Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn yfirlýsinguna.

Við leggjum til að frumvarpið verði samþykkt með þeirri breytingu sem ég nefndi fyrr í ræðunni:

Í stað orðanna „og tækni“ hvarvetna í b–d-lið 5. gr. og 6. gr. komi: tækni og nýsköpunar.

Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafði veg og vanda af því að leiða vinnuna í þessu mikilvæga máli í nefndinni og þakka ég henni kærlega fyrir afskaplega vel unnin störf. Hún gat ekki verið hér til að mæla fyrir álitinu og geri ég það í hennar stað og þakka henni fyrir óeigingjarnt og mikið starf í þessu máli. Undir þetta rita því sá sem hér stendur, framsögumaðurinn, hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og hv. þingmenn Skúli Helgason, Þráinn Bertelsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Tryggvi Þór Herbertsson, Siv Friðleifsdóttir og Birgitta Jónsdóttir.