dagskrártillaga.
Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:
„Undirrituð gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, alþjóðleg vernd.“ — Þá er tillagan rökstudd nánar og síðan segir:
„Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurgreinda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf ritar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.