Varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar, Margréti Frímannsdóttur, dags. 3. febrúar sl.:
„Þar sem Jón Kr. Óskarsson, varamaður Rannveigar Guðmundsdóttur, 2. þingmanns Suðvesturkjördæmis, getur ekki lengur setið á Alþingi óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Sandra Franks stjórnmálafræðingur, Bessastaðahreppi, taki sæti á Alþingi í hans stað sem varamaður í veikindaforföllum Rannveigar Guðmundsdóttur.“
Kjörbréf Söndru Franks hefur þegar verið rannsakað og samþykkt, en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Sandra Franks, 2. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]