139. löggjafarþing — 59. fundur, 17. jan. 2011.
framhaldsfundir Alþingis.
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 17. janúar 2011 kl. 15.00.
Gjört í Reykjavík, 13. janúar 2011.
Ólafur Ragnar Grímsson.
___________________
Jóhanna Sigurðardóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta, hv. alþingismenn, svo og starfsmenn Alþingis velkomna til starfa á nýju ári.