145. löggjafarþing — 59. fundur, 19. des. 2015.
fjárlög 2016.
1. mál
Virðulegi forseti. Við greiðum nú atkvæði um tillögu meiri hluta fjárlaganefndar sem felst í því að bæta við 250 milljónum til viðhalds á Landspítala. Ég fagna að sjálfsögðu þeirri tillögu og styð hana heils hugar. Viðhaldsþörfin hjá spítalanum er brýn og þetta fjármagn mun fara í brýnustu verkefni sem er vel.
Ég segi já.