138. löggjafarþing — 59. fundur, 22. des. 2009.
fjárlög 2010.
1. mál
Virðulegur forseti. Með breyttum áherslum tekjumegin og útgjaldamegin í fjárlagafrumvarpinu er lögð til styrking til félags- og velferðarmála upp á tæplega 3,8 milljarða kr. Ég sé að hæstv. félagsmálaráðherra hafnar þessu aukna fé milli þess er hann skrifar jólakort, vonandi eru það jólakort til öryrkja.