151. löggjafarþing — 59. fundur,  24. feb. 2021.

tekjuskattur.

203. mál
[15:09]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um tekjuskatt fyrir hönd nokkurra hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins, sem eru auk mín Haraldur Benediktsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Brynjar Níelsson, Vilhjálmur Árnason og Ásmundur Friðriksson. Þetta er okkar þriðja tilraun til að ná þessu litla máli í gegn en það er í sjálfu sér lítið og einfalt.

Í tekjuskattslögum kemur fram að draga skuli gengistap frá gengishagnaði ársins og færa mismuninn til tekna sem gengishagnað. Með lögum nr. 61/2008 bættist við ákvæðið sú regla að mismuninn skyldi færa til tekna með jafnri fjárhæð á þrjú ár frá og með því reikningsári sem gengishagnaður fellur til. Það ætti öllum að vera ljóst að þetta ákvæði felur í sér óhagræði og getur valdið töluverðum kostnaði fyrir lögaðila, ekki síst fyrir minni fyrirtæki. Dæmi eru um að fyrirtækjum sé gert skylt að dreifa nokkrum tugum þúsunda króna í skattskyldan gengishagnað yfir þriggja ára tímabil í stað þess að greiða skatt af hagnaðinum strax. Með frumvarpinu er lagt til að þessi kvöð verði felld niður en þess í stað verði um valfrjálsa heimild að ræða. Fyrirtækjum verði heimilt en ekki skylt að dreifa greiðslu skatts af gengishagnaði á allt að þrjú ár.

Frumvarpið hefur engin áhrif á tekjur ríkissjóðs til lengri tíma, mun í einhverjum tilfellum hugsanlega flýta greiðslu skatts af gengishagnaði, en mun örugglega verða til þess að létta undir og einfalda rekstur fyrirtækja, ekki síst þeirra minni.

Að lokinni þessari umræðu, frú forseti, legg ég til að málið gangi til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.