Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 59. fundur,  3. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[03:43]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég sé að enn eru nokkrir stjórnarþingmenn í húsi. Ég fagna því og met það svo, fyrst þeir eru að tínast inn í salinn, að þeir ætli að taka þátt í þessari umræðu með okkur. (Gripið fram í.) Ég er bara mjög spennt að sjá ykkur og heyra í ykkur.

Ég tek undir það sem hefur komið hérna fram og það væri gott að heyra hvort það sé ekki svona von bráðar von á hæstv. ráðherrum. Klukkan er að ganga fjögur. Við hlökkum til að sjá ykkur.