152. löggjafarþing — 6. fundur,  7. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[15:12]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil biðjast afsökunar, ég ruglaðist alveg í ríminu þegar ég fór héðan út úr salnum. Ég áttaði mig ekki á því að ég þyrfti að taka við andsvörum. Því miður held ég að ég verði að biðja hv. þingmann að bera spurninguna upp aftur. Ég hreinlega hélt ég væri laus allra mála næsta hálftímann.