152. löggjafarþing — 6. fundur,  7. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[17:58]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Væntanlega fer þetta mál til efnahags- og viðskiptanefndar, eins og herra forseti kom inn á áðan.

Hv. þingmaður spyr varðandi fjárlögin. Fyrir þingmann sem er að stíga sín fyrstu skref í fjárlaganefnd og hér á þingi þá get ég svarað því til að það er eflaust plan, en hvað það er nákvæmlega get ég ekki fullyrt á þessu stigi málsins. Ég hef það ekki hjá mér. En ég get komist að því fyrir hv. þingmann ef hann óskar þess og reynt að koma því til hans. Ég mun þá beina fyrirspurn til formanns fjárlaganefndar um það hvernig hún sér þá vinnu fyrir sér sem fram undan er á næstu misserum og skal glaður greina hv. þingmanni frá því þegar ég er kominn með það plan í hendur.