143. löggjafarþing — 60. fundur,  10. feb. 2014.

uppbygging hafnarmannvirkja á Bíldudal.

[15:35]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni. Ég deili þeirri skoðun með henni að þetta verkefni er afar spennandi og gæti haft, eins og ég sagði í fyrri ræðu minni, verulega mikil og jákvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu á þessu svæði. Ég ítreka það sem ég sagði hér áðan að við höfum þetta til skoðunar og ég tek brýningu hv. þingmanns og tek undir að niðurstaða þarf að fara að nást um þetta mál.