Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 60. fundur,  3. feb. 2023.

Dagskrártillaga.

[20:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta þingfundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd).“ — Síðan fylgir með frekari rökstuðningur en niðurlag bréfsins er á þá leið að þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.

Undir bréf þetta ritar hv. þm. Björn Leví Gunnarsson. Þessi tillaga verður borin upp til atkvæða í upphafi næsta þingfundar.