139. löggjafarþing — 61. fundur,  19. jan. 2011.

umhverfisábyrgð.

299. mál
[16:02]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um umhverfisábyrgð. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á tilskipun 2004/35/EB, um umhverfisábyrgð í tengslum við varnir gegn umhverfistjóni og úrbætur vegna þess, og er samið í þeim tilgangi að uppfylla skyldur íslenska ríkisins vegna EES-samningsins. Byggir tilskipunin á meginreglu umhverfisréttar um að mengunarvaldur skuli greiða og heitir á enskri tungu: Polluter pays principle.

Tilskipunin var tekin inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 17/2009, þann 5. febrúar 2009. Frumvarpið var sent helstu hagsmunaaðilum til umsagnar 16. nóvember 2009 og var að auki auglýst á heimasíðu umhverfisráðuneytisins og var almenningi gefinn kostur á að gera athugasemdir við efni þess. Voru allar fram komnar umsagnir yfirfarnar af hálfu ráðuneytisins og ýmsar breytingar gerðar vegna þeirra.

Markmiðið með frumvarpi til laga um umhverfisábyrgð er að tryggja að sá sem ber ábyrgð á umhverfistjóni eða yfirvofandi hættu á umhverfistjóni komi í veg fyrir tjón eða bæti úr tjóni ef tjón hefur orðið og beri kostnað af þeim ráðstöfunum sem af því leiðir.

Frumvarpið gildir um umhverfistjón sem valdið er við atvinnustarfsemi sem fellur undir II. viðauka frumvarpsins eða yfirvofandi hættu á umhverfistjóni af völdum slíkrar starfsemi. Gildir ábyrgð rekstraraðila í slíkri atvinnustarfsemi óháð því hvort um gáleysi eða ásetning er að ræða og er því um að ræða hlutlæga ábyrgð hans, þ.e. ábyrgð án sakar. Gildir frumvarpið auk þess um umhverfistjón á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum og yfirvofandi hættu á slíku tjóni sem rekja má til annarrar atvinnustarfsemi en þeirrar sem fellur undir II. viðauka og er valdið af ásetningi eða gáleysi. Frumvarpið gildir um rannsóknir og úrbætur vegna umhverfistjóns og rannsóknir og ráðstafanir til að koma í veg fyrir yfirvofandi hættu á umhverfistjóni sem er valdið í atvinnustarfsemi og kostnað sem af því leiðir. Frumvarpið gildir þó ekki um umhverfistjón eða yfirvofandi hættu á umhverfistjóni þegar liðin eru meira en 30 ár frá því að atburður sem orsakaði tjónið eða hættuna á tjóni varð.

Það umhverfistjón sem fellur undir frumvarpið er tjón af vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum, vatni og landi. Um undantekningar á gildissviðinu er fjallað í 4. gr. frumvarpsins. Gildir frumvarpið því ekki í tilteknum tilvikum ef tjón eða hætta á því er af völdum dreifðrar mengunar, vopnaðra átaka, hernaðarátaka, borgarastyrjaldar eða uppreisnar, náttúruhamfara, starfsemi til að þjóna landvörnum eða alþjóðaöryggi eða þar sem markmiðið er að vernda gegn náttúruhamförum eða af völdum atburðar þar sem ábyrgð eða bætur falla undir gildissvið samnings frá 27. nóvember 1992, um einkaréttarlega ábyrgð vegna tjóns af völdum olíumengunar, eða samnings frá 27. nóvember 1992, um stofnun alþjóðasjóðs til að bæta tjón af völdum olíumengunar.

Í samræmi við tilskipun um umhverfisábyrgð nær frumvarp þetta ekki til einkaréttarlegra skaðabótakrafna vegna líkamstjóns, munatjóns eða almenns fjártjóns.

Frumvarp til laga um umhverfisábyrgð er í 13 köflum ásamt tveimur viðaukum. Í I. viðauka eru rammaákvæði sem fylgja ber þegar valdar eru heppilegustu ráðstafanirnar til að tryggja úrbætur vegna umhverfistjóns. Í II. viðauka er síðan talin upp sú atvinnustarfsemi sem ber hlutlæga ábyrgð samkvæmt frumvarpinu.

Í tilskipun um umhverfisábyrgð er um skilgreiningar á vernduðum tegundum og vistgerðum vísað til tilskipunar 79/409/EBE um verndun villtra fugla og tilskipunar 92/43/EBE um vernd vistgerða og villtra plantna og dýra en þessar tvær tilskipanir falla ekki undir EES-samninginn. Samkvæmt tilskipun um umhverfisábyrgð er gert ráð fyrir að aðrar tegundir eða svæði sem aðildarríki ákveður að sömu markmið gildi um falli undir skilgreininguna. Með hliðsjón af því er í skilgreiningu frumvarpsins á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum vísað til íslenskrar löggjafar á sviði náttúruverndar. Í þeirri löggjöf er m.a. tekið tillit til alþjóðasamninga sem Ísland er aðili að svo sem samnings um verndun villtra dýra og plantna og lífsvæða í Evrópu og samnings um líffræðilega fjölbreytni.

Samkvæmt frumvarpinu er umhverfistjón á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum tjón sem hefur veruleg skaðleg áhrif á varðveislu verndaðra tegunda og náttúruverndarsvæða. Sem dæmi um slíkt tjón má nefna svo mikla röskun að tegund er fæld burt af svæði t.d. vegna mannvirkjagerðar og losun mengandi efna sem eyðileggja búsvæði tegundar. Samkvæmt frumvarpinu er umhverfistjón á vatni tjón sem hefur veruleg skaðleg áhrif á umhverfi og gæði vatns hvað varðar vistfræðilegt og gott efnafræðilegt ástand þess og/eða magnstöðu grunnvatns. Í frumvarpinu er um viðmið vísað til skilgreininga í frumvarpi til laga um stjórn vatnamála sem samið var til innleiðingar hér á landi úr ákvæðum tilskipunar 260/EB um aðgerðarramma EB um stefnu á sviði vatnamála og lagt hefur verið fram á Alþingi sem og reglugerðum sem settar verða samkvæmt væntanlegum lögum um stjórn vatnamála. Getur umhverfistjón á vatni verið bein afleiðing af skaðlegum áhrifum á sjálft vatnshlotið eða afleiðing af skaðlegum áhrifum á aðrar náttúruauðlindir. Mengun á landi getur t.d. haft í för með sér umhverfistjón á vatni vegna niðurrennslis mengandi efna gegnum jarðveg og í grunnvatn.

Umhverfistjón á landi er samkvæmt frumvarpinu hvers kyns mengun á landi sem veldur umtalsverðri hættu á skaðlegum áhrifum á heilsufar manna vegna efna eða lífvera sem með beinum eða óbeinum hætti berast á yfirborð lands eða í jarðveg eða berggrunn. Gera má ráð fyrir að um umhverfistjón á landi sé að ræða ef sýnt er fram á að staðfest mengunarstig geti haft skaðleg áhrif á heilsufar manna og má sem dæmi nefna hættu sem bundin er við snertingu svo sem við leik, garðvinnu og fleira og hættu sem leiðir af myndun skaðlegra lofttegunda í jörð.

Sú atvinnustarfsemi sem frumvarpið nær til er annars vegar sú starfsemi sem ber hlutlæga ábyrgð og sem getið er um í II. viðauka frumvarpsins, er þar m.a. um að ræða leyfisskylda starfsemi samkvæmt 5. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir og flutning úrgangs milli landa samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs. Frumvarpið nær þó til allrar annarrar atvinnustarfsemi, eins og hún er skilgreind í frumvarpinu, þegar um gáleysi eða ásetning rekstraraðila er að ræða en eingöngu þegar um er að ræða umhverfistjón á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum eða yfirvofandi hættu á slíku tjóni.

Með frumvarpi þessu er í fyrsta skipti verið að setja fram reglur um athafnaskyldu rekstraraðila sem ábyrgð ber á umhverfistjóni eða yfirvofandi hættu á slíku tjóni. Jafnframt er kveðið á um heimildir stjórnvalds til að gefa rekstraraðila fyrirmæli um rannsóknir og ráðstafanir til að koma í veg fyrir yfirvofandi umhverfistjón eða til að bæta úr slíku tjóni. Þá er í samræmi við greiðslureglu umhverfisréttarins kveðið á um að rekstraraðili sem ber ábyrgð samkvæmt lögum skuli greiða kostnað af ráðstöfunum til að koma í veg fyrir umhverfistjón eða bæta úr slíku tjóni og greiða auk þess gjald vegna málsmeðferðar stjórnvalds sem samkvæmt frumvarpinu er Umhverfisstofnun.

Umhverfisstofnun er sú stofnun sem hefur umsjón og eftirlit með framkvæmd laganna samkvæmt 22. gr. frumvarpsins. Er það því m.a. hlutverk stofnunarinnar að meta hvort tjón sem er orðið eða er yfirvofandi flokkist sem umhverfistjón og einnig hver beri ábyrgð í slíkum tilvikum. Er það þá hlutverk Umhverfisstofnunar að gefa rekstraraðila sem ábyrgð ber fyrirmæli í samræmi við III. kafla frumvarpsins.

Eins og áður er getið er í I. viðauka frumvarpsins fjallað um úrbætur vegna þess umhverfistjóns sem frumvarpið nær til. Í tilskipun um umhverfisábyrgð kemur fram að í henni felist lágmarkskröfur. Aðildarríkjum er því heimilt að viðhalda eða kveða á um strangari reglur.

Almennt eru gerðar sömu kröfur til rekstraraðila samkvæmt ákvæðum frumvarpsins og mælt er fyrir um í tilskipuninni. Lagt er þó til í frumvarpinu hvað varðar umhverfistjón á landi að gerð sé krafa um ráðstafanir til að eyða mengun og endurheimta fyrra ástand lands eða gera jafngildar ráðstafanir samkvæmt I. viðauka frumvarpsins sem byggir á II. viðauka tilskipunar um umhverfisábyrgð. Þykir það vera í samræmi við meginreglur umhverfisréttar og æskilega framkvæmd hér á landi. Sama krafa var gerð um innleiðingu tilskipunarinnar í danskan rétt enda í samræmi við það sem áður hafði gilt samkvæmt dönskum lögum.

Samkvæmt II. viðauka tilskipunarinnar skulu úrbætur vegna mengunar á landi að lágmarki leiða til þess að mengunin valdi ekki lengur hættu á skaðlegum áhrifum á heilsufar manna. Hvað varðar úrbætur vegna umhverfistjóns sem varða vatn, verndaðar tegundir eða náttúruverndarsvæði felast þær samkvæmt I. viðauka frumvarpsins í því að koma umhverfinu aftur í fyrra ástand með því að gera á því svokallaðar frumúrbætur, fyllingarúrbætur eða jöfnunarúrbætur eins og nánar er getið um í viðaukanum.

Um ábyrgð á greiðslu kostnaðar rekstraraðila er fjallað í IV. kafla frumvarpsins. Samkvæmt 20. gr. skal rekstraraðili bera kostnað við rannsóknir, varnarráðstafanir og úrbætur sem framkvæma ber samkvæmt frumvarpinu. Einnig skal hann bera kostnað stjórnvalda vegna aðgerða sem þeim er samkvæmt lögum falið að grípa til og falla undir lögin m.a. vegna bráðamengunar eða mengunaróhappa.

Nái frumvarp þetta fram að ganga er fyrir séð að það muni marka tímamót í íslenskri löggjöf í ljósi þeirrar mikilvægu umhverfisverndar og þar með nýmæla sem í því felast.

Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfisnefndar.