150. löggjafarþing — 61. fundur,  20. feb. 2020.

aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum.

292. mál
[13:34]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Með mér á tillögunni er hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson. Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram lagafrumvarp fyrir árslok 2020 sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Frumvarpið feli m.a. í sér ákvæði sem tryggi að:

a. sjóðfélagar fari með æðsta vald í málefnum lífeyrissjóða með því m.a. að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum sjóðfélaga eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna,

b. stjórnir lífeyrissjóða séu kosnar ár hvert á ársfundi sjóðs,

c. stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í lífeyrissjóðum megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða í þeim fyrirtækjum sem sjá um fjárfestingar fyrir hönd lífeyrissjóðs,

d. Fjármálaeftirlitið haldi skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða,

e. Fjármálaeftirlitið hafi eftirlit með því hvort hagsmunir stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða samrýmist þeim reglum sem gilda um störf þeirra.“

Í greinargerð með tillögunni kemur fram að mál þetta var áður flutt á 149. löggjafarþingi, 857. mál, en náði ekki fram að ganga. Það hlýtur að breytast núna því að það hlýtur að vera mikill vilji allra að lögþvingaðir eigendur lífeyrissjóða, þeir sem eru lögþvingaðir til að greiða í sjóðina, fái að hafa sem mest um þá sjóði að segja.

Með tillögu þessari er lagt til að Alþingi álykti að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Lagt er til að frumvarpið feli í sér skýr ákvæði sem tryggi sjóðfélögum aukið vald í málefnum lífeyrissjóðanna, að stjórnir þeirra séu með skýrt umboð sjóðfélaga, að ekki séu líkur á hagsmunaárekstrum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra við hagsmuni lífeyrissjóðanna og sjóðfélaga og aukið eftirlit með hagsmunaskráningu til að koma í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra.

Eftir kjarasamninga vorið 1969 hafa stjórnir lífeyrissjóðanna almennt verið skipaðar til helminga af Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd launagreiðenda og af viðkomandi stéttarfélagi, en án aðkomu hins almenna sjóðfélaga sem er þó ásamt launagreiðanda skyldaður til að greiða í lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps. Launagreiðendur hafa ávallt tilnefnt fulltrúa til setu í stjórnum lífeyrissjóða og á það sér sögulegar skýringar og grundvallaðist í upphafi á húsbóndaábyrgðinni. — Við skulum taka eftir því, það hafa nefnilega orðið ansi miklar breytingar á þeim tíma sem liðinn er frá því árið 1969, á 50 ára tímabili, eins og allir vita. Það er ekki bara þarna sem stökkbreyting hefur orðið í uppbyggingu og innviðum í samfélaginu og framþróun heldur alls staðar. Breytingarnar hafa orðið mjög víðtækar. Launagreiðendur hafa ávallt tilnefnt fulltrúa til setu í stjórnum lífeyrissjóða og á það sér sögulegar skýringar, eins og ég sagði áður, og grundvallast í upphafi, þarna í kringum 1969, á hinni svokölluðu húsbóndaábyrgð.

Mikil breyting hefur orðið á húsbóndaábyrgðinni og framfærsluskyldu almennt. Framfærsluskyldan er að mestu komin yfir til opinberra aðila og hvílir meginþunginn á sveitarfélögunum en nokkur hluti er hjá ríkinu. Fáum dettur í hug að launagreiðandi hafi skyldu til að framfæra fyrrverandi starfsmenn, hvort sem þeir hafa hætt störfum sökum aldurs eða vegna örorku. Þannig hefur hin forna húsbóndaábyrgð flust yfir til Tryggingastofnunar ríkisins, skattkerfisins í formi barna- og vaxtabóta, til lífeyrissjóða, húsaleigubóta og félagsþjónustu sveitarfélaga. Því er ekki lengur sama ástæða fyrir því að launagreiðendur eigi sæti í stjórn lífeyrissjóða. — Bara akkúrat ekki, hvað eiga launagreiðendur í lífeyrissjóðunum? Það eru launþegar sem eiga lífeyrissjóðina. — Þá hafa sjóðfélagar mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta og því þykir flutningsmönnum þessarar tillögu rétt og eðlilegt að sjóðfélagar fái að taka beinan þátt í starfsemi og stefnumótun lífeyrissjóða með þátttöku og kosningarétti á ársfundum sjóðanna.

Það hefur sýnt sig í umræðu síðustu ára að almenningur er ekki ánægður með ríkjandi kerfi þar sem honum er jafnan ekki tryggð aðkoma að rekstri lífeyrissjóða sem hann er þó skuldbundinn samkvæmt lögum að greiða í. Mikilvægt er því að færa valdið aftur til sjóðfélaga og setja um það skýrar reglur. Er því lagt til að í frumvarpi því sem lagt verði fyrir Alþingi verði m.a. kveðið á um að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum þeirra eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna. Eðlilegt er þó að sjóðfélagi geti veitt öðrum skriflegt umboð til að fara með atkvæði sitt á félagsfundum. Þá telja flutningsmenn rétt að lögfesta ákvæði sem tryggi að kosning stjórnar sé tekin fyrir á hverju ári.

Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrari reglum um að stjórnarmenn megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða stundar viðskipti við. Jafnframt þarf að tryggja að opinbert eftirlit sé með hagsmunum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða svo að grípa megi til aðgerða ef kemur til hagsmunaárekstra. Því er lagt til í frumvarpinu að Fjármálaeftirlitinu verði falið að halda skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða og jafnframt að hafa eftirlit með því að þeir hagsmunir og þau trúnaðarstörf myndi ekki hagsmunaárekstra gagnvart hagsmunum lífeyrissjóðs og sjóðfélaga.

Virðulegi forseti. Eins og gengur var gefinn kostur á því að senda inn umsagnir í fastanefnd um þessa tillögu og mig langar að nefna þá einu umsögn sem barst. Hún barst frá Hagsmunasamtökum heimilanna og ég verð að segja að ég er svolítið undrandi á því að ekki skuli vera meiri áhugi á þessu máli.

Með leyfi forseta ætla ég að vísa hér í umsögn Hagsmunasamtaka heimilanna þar sem segir:

„Þingsályktunartillaga þessi hefur það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum, m.a. með því að sjóðfélögum lífeyrissjóða verði gert kleift að fara með atkvæðisrétt. Einnig að settar verði ákveðnar reglur til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og eftirlit með þeim. Hagsmunasamtök heimilanna eru hlynnt markmiðum tillögunnar …“ — Og í raun verð ég bara að þakka fyrir það.

Það er svo sem ekkert meira um þetta að segja. Ég vísa tillögunni bara í réttan farveg. Virðulegur forseti veit örugglega hvert hún á að fara. Væntanlega er það stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, ég er samt ekki viss, svo að ég viðurkenni það alveg. Maður er svolítið ringlaður í öllum þessum nefndum. Ég vona bara að vel verði tekið utan um þetta mál og af þeirri virðingu sem sjóðfélagar eiga rétt á.