dagskrártillaga.
Eins og tilkynnt var á síðasta þingfundi hefur forseta borist dagskrártillaga svohljóðandi:
„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta þingfundar verði þau dagskrármál sem forseti leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd).“
Svo segir: „Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf ritar Björn Leví Gunnarsson.
Fer nú fram atkvæðagreiðsla um tillöguna.