Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2023.

Störf þingsins.

[13:52]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það er mjög auðvelt að ofnota hugtök á borð við svört skýrsla og áfellisdómur. Það má hins vegar vel færa rök fyrir því að þessi hugtök nái ekki alveg yfir inntakið í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýslu sjókvíaeldis sem kynnt var í gær, svo alvarleg er hún. 23 athugasemdir gerðar, margar mjög alvarlegar, um brotalamir, aðgerðaleysi, slælegt eftirlit, lélega stjórnsýslu og hagsmunaárekstra sem undirstrikar mjög bersýnilega skort á pólitískri sýn, skort á aðgerðum og forystu um eina mikilvægustu atvinnugrein okkar Íslendinga, hið ört vaxandi fiskeldi. Eitt af því sem Ríkisendurskoðun nefnir er að samþjöppun eignarhalds og stefnulaus uppbygging og nýting svæða sem vinna gegn því að auðlindin skili hámarksávinningi fyrir ríkissjóð hefur fest sig í sessi, með leyfi forseta, „án mikillar umræðu eða atbeina stjórnvalda“. Þessi setning frá annars orðvörum ríkisendurskoðanda er sláandi. Hér hefur byggst upp heil atvinnugrein sem stækkar ár frá ári stjórnlaust, stundum í óþökk náttúrunnar, í gegndarlausu kapphlaupi um svæði nánast án eftirlits eða eðlilegrar gjaldtöku og án þess að stjórnvöld hafi haft mikinn áhuga á umræðu eða hafi beitt sér fyrir því að lög og reglur mynduðu tilhlýðilegan ramma um greinina sem skilar tugum milljarða í þjóðarbúið. Þetta er í grófum dráttum niðurstaða ríkisendurskoðanda.

Hér er látið reka á reiðanum enda kom þetta metnaðarleysi glögglega í ljós í svörum hæstv. forsætisráðherra um skýrsluna í gær. Í svörum forsætisráðherra, sem stýrt hefur ríkisstjórninni í fimm ár, var það gert að aðalatriði málsins að matvælaráðherra hefði óskað eftir umræddri skýrslu fyrir ári. Hvað með öll valdaárin frá 2018 þegar fiskeldið óx úr 12.000 tonnum í 45.000 tonn? Núverandi matvælaráðherra var umhverfisráðherra þá og umhverfisráðuneytið fær sinn skerf af athugasemdum í skýrslunni og einnig undirstofnanir ráðuneytisins. Það var svo forsætisráðherra sem verkstýrði aðgerðaleysinu. Er hægt að verja margra ára stefnuleysi og aðgerðaleysi með því að óska eftir skýrslu til að fletta ofan af eigin vangetu og vanhæfni? Er það eitthvað til að hreykja sér af að hafa hringt á slökkviliðið á fimmta ári (Forseti hringir.) eftir að hafa horft aðgerðalaus á eldinn í fjögur ár og kastað sprekum á bálið? (Forseti hringir.) Þessi mikilvæga atvinnugrein á betra skilið en þessa ríkisstjórn og þennan gegndarlausa ábyrgðarflótta alltaf hreint.