Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[14:48]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Ég ætla að fá að tala hér um merkilega umsögn frá Rauða krossinum á Íslandi og með leyfi forseta ætla ég að vitna í hana:

„Rauði krossinn á Íslandi stendur vörð um mannréttindi og virðingu einstaklinga og vinnur að málefnum flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd í samvinnu við stjórnvöld og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Rauði krossinn hefur ítrekað gagnrýnt skort á samráði og samtali við aðila sem starfa í málaflokknum og hafa til þess sérþekkingu og reynslu við gerð frumvarpsins, sem og neðangreindra frumvarpa sem ekki hafa náð fram að ganga. Telur félagið mikilvægt að þær víðtæku lagabreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu séu unnar í þverfaglegu samráði svo sátt geti skapast um stefnu og lagaumhverfi í málefnum fólks á flótta.

Rauði krossinn hefur ítrekað gagnrýnt skort á samráði og samtali við aðila sem starfa í málaflokknum og hafa til þess sérþekkingu og reynslu við gerð frumvarpsins, sem og neðangreindra frumvarpa sem ekki hafa náð fram að ganga. Telur félagið mikilvægt að þær víðtæku lagabreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu séu unnar í þverfaglegu samráði svo sátt geti skapast um stefnu og lagaumhverfi í málefnum fólks á flótta.“

Svo langar mig, með leyfi forseta, að vitna hér í fyrsta kaflann sem er þá almennar athugasemdir frá Rauða krossinum á Íslandi:

„Frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga var lagt fram á 149. löggjafarþingi […] en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið var endurflutt á 150. löggjafarþingi […] en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið var endurflutt þriðja sinni á 151. löggjafarþingi […] en náði heldur ekki fram að ganga. Á 152. löggjafarþingi […] var frumvarpið endurflutt í fjórða sinn en í breyttri mynd. Frumvarpið náði ekki fram að ganga og er nú endurflutt í fimmta sinn. Rauði krossinn hefur áður skilað inn ítarlegum umsögnum um fyrri frumvörp og frumvarpsdrög, síðast með umsögn hinn 31. maí sl., þar sem gerðar hafa verið alvarlegar athugasemdir við fjölmörg ákvæði frumvarpsins. Sum þeirra ákvæða eru í óbreyttri mynd í hinu nýja frumvarpi en önnur hafa tekið einhverjum breytingum.

Rauði krossinn telur miður að frumvarpið taki ekki á þeim vanda sem samfélagið stendur frammi fyrir varðandi þá umsækjendur sem hér sitja fastir og réttindalausir og ekki er hægt að flytja úr landi. Dæmi um slíka umsækjendur eru umsækjendur frá Írak sem fengið hafa lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd en íröksk stjórnvöld samþykkja ekki endurviðtöku á. Að mati Rauða krossins vantar inn í frumvarpið ákvæði sem tekur á vanda þessa hóps en einungis er þar að finna tillögu sem þröngvar þeim á götuna í þeirri von að þeir fari sjálfviljugir úr landi, sbr. 6. gr. frumvarpsins um þjónustusviptingu. Hinn 3. nóvember sl. sendi Rauði krossinn dómsmálaráðuneytinu Ítarlega umfjöllun unna upp úr skýrslu félagsins um aðstæður umsækjenda í framangreindri stöðu hér á landi.“ — Ég vil biðja forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.