Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 62. fundur,  7. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:15]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég er að velta fyrir mér nokkrum hlutum, þar á meðal hvort einhver samskipti hafi verið um það hvort einhverjir hv. þingmanna sem eru á nefndarálitum tengd þessu frumvarpi eða mögulega hæstv. ráðherrar sem sinna þeim málaflokkum, sérstaklega hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hafi gefið til kynna hvort þeim verði unnt að taka þátt í umræðunni hér. Að lokum, í ljósi þess að samþykkt var að lengja þingfund, gæti forseti gefið einhverjar vísbendingar um hversu lengi þingfundur mun standa í kvöld?