dagskrártillaga.
Eins og tilkynnt var á síðasta þingfundi hefur forseta borist dagskrártillaga svohljóðandi:
„Undirritaður gerir það að tillögu sinni, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá næsta fundar verði þau dagskrármál sem forseti Alþingis leggur til, að því undanskildu að út af dagskrá fundarins verði tekið 382. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga (alþjóðleg vernd).“
Þá segir:
,,Þess er óskað að tillagan verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf ritar Indriði Ingi Stefánsson. Fer nú fram atkvæðagreiðsla um tillöguna.