131. löggjafarþing — 63. fundur, 31. jan. 2005.
Vatnalög.
413. mál
[17:06]
iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er þetta upphaf 13. gr. sem við varðveitum, með leyfi forseta:
„Vötn öll skulu renna sem að fornu hafa runnið.“
Málið er að sérstakt leyfi þarf til þess að fara á svig við þennan málslið, 1. málsl. 13. gr.