Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[12:46]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Við hv. þm. Eyjólfur Ármannsson höfum átt mikið spjall um þessi lög. Ég tel að þessi breytingartillaga hans varpi ljósi á það hversu óúthugsuð þessi tillaga er í frumvarpinu til að byrja með. Þar sem ég er hins vegar andvíg þessu frumvarpi og þessu ákvæði frumvarpsins mun ég ekki greiða atkvæði, hvorki með né á móti þessari breytingartillögu hv. þingmanns.