Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

póstþjónusta.

531. mál
[16:33]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um póstþjónustu, nr. 98/2019. Frumvarpið felur í sér minni háttar breytingar á lögunum og er tilefni þess þríþætt. Í fyrsta lagi er frumvarp þetta flutt til að leiðrétta mistök við flutning stjórnsýslu póstmála frá Póst- og fjarskiptastofnun, sem nú heitir Fjarskiptastofa, til Byggðastofnunar. Þetta hafði gerst með frumvarpi til laga um breytingu á lögum um póstþjónustu og lögum um Byggðastofnun, þskj. 895, 534. mál, og frumvarpið varð að lögum nr. 76/2021. Með lögunum var orðunum Póst- og fjarskiptastofnun breytt í orðið Byggðastofnun í I. og II. kafla laga um póstþjónustu en mistök leiddu til þess að þessi hugtakabreyting skilaði sér ekki í aðra kafla laganna og er hér lagt til að bætt verði úr því.

Í öðru lagi er nauðsynlegt að styrkja lagastoð fyrir innleiðingu Evrópureglugerðar nr. 644 og 1263, báðar frá árinu 2018, en með reglugerðunum er leitast við að tryggja gagnsæi gjaldskráa póstrekenda yfir landamæri og greiða fyrir netverslun á milli landa. Þá er einnig lagt til að sett verði sérstakt innleiðingarákvæði í lögin til aukins skýrleika og í samhengi við reglugerðarheimild í d-lið 1. mgr. 47. gr. laganna, samanber einnig 3. gr. frumvarpsins.

Í þriðja lagi er lagt til að heimildir þjónustuveitanda til að nýta bréfkassasamstæður verði rýmkaðar til muna frá þeim reglum sem nú gilda en samkvæmt þeim er alþjónustuveitanda aðeins heimilt að setja upp bréfkassasamstæðu á einum stað fyrir alla móttakendur póstsendinga í þéttbýli. Bréfasendingum hefur fækkað jafnt og þétt undanfarin ár á sama tíma og pakkasendingum fjölgar verulega. Fyrr á þessu ári skilaði starfshópur á vegum ráðherra um alþjónustu í póstdreifingu af sér tillögum til úrbóta sem nú er unnið að í ráðuneytinu. Tillögurnar miða m.a. að því að lækka kostnað ríkissjóðs af póstþjónustu, svonefndan alþjónustukostnað. Enn fremur eiga tillögurnar að tryggja að allir landsmenn fái notið póstþjónustu og greiði fyrir hana viðunandi verð, tryggja heilbrigða samkeppni á svæðum þar sem ekki er markaðsbrestur og greina mögulega skörun á milli laga um póstþjónustu og laga um farþegaflutninga og farmflutninga.

Ein af tillögum starfshópsins var að ráðuneytið léti gera könnun um afstöðu neytenda til póstþjónustu í landinu. Könnunin var gerð á vormánuðum 2022. Jákvæð afstaða til bréfkassasamstæðna í niðurstöðum könnunarinnar og jákvæð reynsla og afstaða Norðmanna til aukinnar notkunar bréfkassasamstæðna í þéttbýli gaf tilefni til að leggja til að rýmka heimild til að nota bréfakassasamstæður og draga með því úr bréfaburði upp að dyrum. Þá er líklegt að aukin notkun bréfkassasamstæðna geti mögulega minnkað alþjónustukostnað ríkissjóðs, enda felur það í sér minni útburð fyrir alþjónustuveitanda. Svokölluð póstbox, sem Íslendingar þekkja vel og sækja pakka í, eru hliðstæða við bréfakassasamstæðu og hefur þeim verið vel tekið hér á landi og ört vaxandi notkun þeirra gengið vel.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.