Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[13:16]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Hér undir er 6. gr. frumvarpsins sem af mörgum slæmum er sennilega ein sú allra versta. Hún gengur mjög langt í því að þrengja að réttindum fólks. Hún er að skapa mikla óvissu og hún er líka að gera það að verkum að þessi meinta skilvirkni sem talað er um er algerlega á kostnað lýðréttinda og mannréttinda fólks sem fyrir er í ákaflega viðkvæmri stöðu.

Það er ástæðan fyrir því að ég styð það að þessi tiltekna grein falli brott. Ég segi því já.