Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 64. fundur,  9. feb. 2023.

lögreglulög.

535. mál
[18:12]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs gerði fyrirvara við þetta frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra. Að okkar mati í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er það til marks um styrk samfélagsins og Íslands sem réttarríkis að það heyrir til algerra undantekninga að lögregla þurfi að beita vopnavaldi. Það hefur hingað til ekki þótt ástæða til að almennir lögreglumenn beri á sér skotvopn við skyldustörf og að okkar mati í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er til mikils að vinna fyrir samfélagið allt að svo megi vera áfram. Þó að hér sé ekki lögð til efnisbreyting á lagaramma um vopnaburð lögreglu í frumvarpinu þá telur þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að rétt sé að nýta tilefnið til að árétta þá afstöðu að vopnaburður lögreglu skuli ekki vera almennur hér á landi og að slíkt beri að forðast í lengstu lög. Þingflokkurinn vill að við þinglega meðferð verði það skoðað og rætt hvort ráðherra beri að hafa samráð við Alþingi áður en slíkar reglur eru settar.

Virðulegi forseti. Þingflokkur VG telur einnig ástæðu til að árétta að þó að gert sé ráð fyrir að lögregla hafi eftirlit með einstaklingum eða hópum til að sporna við skipulagðri brotastarfsemi eða ógn við öryggi ríkisins eða almennings skuli lögregla ætíð gæta hófs við beitingu slíkra rannsóknaraðferða. Þeim skuli aðeins beitt þegar það telst nauðsynlegt og aldrei gengið lengra en raunverulegt og rökstutt tilefni er til. Almennar grundvallarreglur um meðalhóf við framkvæmd löggæslu koma fram bæði í lögreglulögum og lögum um meðferð sakamála og þeirra skal gætt vandlega við beitingu þeirra rannsóknaraðferða sem lagðar eru til í frumvarpinu.

Þá vil ég fyrir hönd þingflokks VG koma þeirri ábendingu til allsherjar- og menntamálanefndar að skoðað verði hvort rétt sé að takmarka beitingu slíkra rannsóknaraðferða við þau tilvik þegar grunur er um brot sem kunna að varða alvarlegri refsingu að lögum.