150. löggjafarþing — 65. fundur, 3. mars 2020.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá varaformanni þingflokks Miðflokksins um að 3. þm. Norðaust., Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, og 6. þm. Suðvest., Gunnar Bragi Sveinsson, verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þá fyrstu varamenn á lista Miðflokksins í kjördæmunum tveimur, Þorgrímur Sigmundsson og Una María Óskarsdóttir.
Þau hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.