146. löggjafarþing — 65. fundur, 15. maí 2017.
orð ráðherra í sérstakri umræðu.
Hæstv. forseti. Hér fór fram málefnaleg umræða. Við erum ekki öll sammála, það er alveg ljóst. En þau orð sem hæstv. ráðherra lét hér falla eru algerlega óásættanleg. Ég fer þess á leit að hann biðji hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson afsökunar á þeim.