133. löggjafarþing — 66. fundur, 6. feb. 2007.
aðild starfsmanna að evrópskum samvinnufélögum.
450. mál
Frú forseti. Ég er að reyna að átta mig á þessu frumvarpi. Mér þætti gott að fá leiðsögn hæstv. ráðherra hér til að fá nánari skýringar á frumvarpinu, til dæmis á því hvaða félög hér um ræðir og hvaða praktísku úrræði þetta frumvarp heimili, hvað í rauninni kalli á þetta og hvernig hann sjái fyrir sér að það reyni á frumvarpið sem við stefnum að því að gera að lögum, sýnist mér.