133. löggjafarþing — 66. fundur, 6. feb. 2007.
þjóðfáni Íslendinga í þingsal Alþingis.
41. mál
Virðulegi forseti. Þetta er svona hálfgildingsandsvar. Ég tek undir með hv. þm. Merði Árnasyni hversu mikil og einlæg samstaða þetta er, mynd af Jóni Sigurðssyni, okkar leiðandi ljósi í þingsal, þá er það eðlilegt að þjóðfáninn sé þar líka svo órofin tengsl sem þarna eru á milli og segir eiginlega allt sem segja þarf um sjálfstæðisbaráttu okkar.