143. löggjafarþing — 66. fundur, 20. feb. 2014.
aðildarviðræður við Evrópusambandið.
320. mál
Hæstv. forseti. Hv. þingmaður hefur í nýlegri bók lýst mörgum þáttum varðandi þetta mál og gerði það svo sem líka hér í dag.
Ég vildi nota tækifærið og spyrja hv. þingmann hvort hann telji að makríldeilan hafi verið eina ástæða þess að það tafðist að hefja vinnuna á sviði sjávarútvegsmála sem þeim hætti sem raunin varð.