146. löggjafarþing — 66. fundur,  16. maí 2017.

störf þingsins.

[13:37]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Hæstv. menntamálaráðherra sagði í þættinum Víglínunni á dögunum að þeir sem gagnrýndu þá fyrirætlan hans að láta einkarekinn Tækniskólann yfirtaka rekstur Fjölbrautaskólans við Ármúla án greiningarvinnu þyrftu að svara því hvernig mæta ætti þeim áskorunum sem framhaldsskólakerfið stendur frammi fyrir. Hæstv. ráðherra gerir ekki sömu kröfu til sín þegar kallað er eftir því að hann rökstyðji þessa aðgerð, sem mér finnst vera fráleit, hvort sem litið er á það út frá faglegum sjónarmiðum eða rekstrarlegum.

Hvaða áskorunum standa framhaldsskólarnir í landinu frammi fyrir nú um stundir? Þeir standa frammi fyrir því að tryggja eins gott aðgengi að námi og mögulegt er, enda eru framhaldsskólarnir hornsteinar byggða um allt land. Stytting námstíma til stúdentsprófs verður til þess að nemendum fækkar í bóknámi og veldur mestum breytingum í hreinum bóknámsskólum, tímabundinni náttúrulegri fækkun nýnema, aukinni þörf fyrir samstarf við fámennari skóla til að tryggja fjölbreytt námsframboð, ýmist með staðbundnu námi eða fjarnámi, að vinna gegn brottfalli nemenda og efla starfsmenntun.

Hæstv. menntamálaráðherra vill leggja framhaldsskólunum lið við að takast á við þessar áskoranir með því að sameina stóra skóla í Reykjavík og láta Tækniskólann, sem er stærsti skóli landsins og býður nemendum nú upp á fjölbreytt nám í tæknigreinum, taka yfir góðan rekstur á 900 nemenda skóla sem býður nemendum upp á nám á heilbrigðissviði og þjónar auk þess 1.300 nemendum í fjarnámi.

Er nema von að menn spyrji hvað hæstv. ráðherra gangi til? Ef breytingin tekur gildi næsta skólaár hafa hvorki nemendur né kennarar möguleika á að bregðast við því með því að velja sér annan skóla til náms eða starfa. Réttindi starfsfólksins eru ótryggð. Ef ráðherra lætur til skarar skríða er það skemmdarverk á framhaldsskólastiginu fremur en stuðningur við þær áskoranir sem kerfið stendur frammi fyrir og skipta svo miklu máli fyrir einstaklinga og menntunarstig í landinu.