146. löggjafarþing — 66. fundur, 16. maí 2017.
barnaverndarlög.
426. mál
Herra forseti. Mig fýsir að vita hvaða tölulegar upplýsingar hv. þm. Brynjar Níelsson hefur í sínum fórum um tálmanir og brot á umgengni. Hann nefndi hér í ræðu sinni áðan að þau brot hlaupi á hundruðum. Mig langar til að vita nákvæmlega hvaða tölur hann er að vísa í.