143. löggjafarþing — 67. fundur, 24. feb. 2014.
lengd þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég segi nei. Ég hef ekkert á móti því að vera fram eftir þegar þörf krefur en ég sé enga ástæðu til þess að við séum fram eftir í kvöld, ég sé ekki neina langa lista af málum sem bíða afgreiðslu þannig að mér er það eiginlega undrunarefni að forseti, svo skynsamur sem hann hefur verið í þessum málum í morgun og fram undir þetta, skuli yfirleitt leggja það til að við séum hér í kvöld.