152. löggjafarþing — 67. fundur,  8. apr. 2022.

heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa.

599. mál
[18:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður vísar hér í tillögu velferðarnefndar sem spratt af umfjöllun um meðferðarheimilið Arnarholt. Því er til að svara að það var skipuð þriggja manna nefnd sem Þórdís Ingadóttir dósent leiðir og þau hafa boðað að þau skili af sér núna í þessum mánuði. Það er síðar en til stóð, af ýmsum orsökum hefur vinnan tekið lengri tíma en fyrirhugað var, en þau hafa boðað að skila af sér í þessum mánuði, í aprílmánuði.