141. löggjafarþing — 67. fundur,  17. jan. 2013.

fjölmiðlar.

490. mál
[14:11]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Mig langar til að þakka fyrir svarið. Tvær spurningar í viðbót sem tengjast þessu. Hvert mundu þeir leita sem upplifa að á sér sé brotið af fjölmiðlanefnd? Hafa þeir einhvern rétt til þess að skjóta málinu eitthvert annað? Höfum við einhver viðmið í þessu ferli öllu frá nágrannaríkjum okkar?

Síðan er það — nú er ég búin að gleyma hinni spurningunni og á hvort eð er bara 14 sekúndur eftir þannig að ég ætla að láta þetta duga.